Kolbrún Bergþórsdóttir spyr Bryndísi Loftsdóttur bóksala um uppáhaldsbækurnar hennar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina og það stendur ekki á svörum hjá henni. En það vekur athygli að hún nefnir eingöngu barnabækur sem eftirlætisbækur: „Ég ætla að nefna tvær söguhetjur sem ýmislegt eiga sameiginlegt þrátt fyrir mjög ólík sögusvið. Annars vegar er það verkfræðingssonurinn Elías úr samnefndum bókum eftir Auði Haralds og hins vegar Tóta úr Í afahúsi eftir Guðrúnu Helgadóttur. Bæði Tóta og Elías eru einstaklega vel máli farin, hnyttin, bráðger og framhleypin auk þess sem þau kippa rækilega í örlagaþræði fjölskyldunnar.“ Þetta eru hvort tveggja söguhetjur bóka sem alllangt er síðan komu út en Bryndís bætir úr því: „Uppáhaldssöguhetjur mínar úr samtímabarnabókum eru svo stóra og litla skrímslið úr Skrímslabókum Áslaugar Jónsdóttur, Kalle Gúettler og Rakel Helmsdal. Það er einhver galdur í þessum sögum sem maður fær bara ekki leiða á.”
Barnabækur líka fyrir fullorðna
- Höfundur: Ritstjórn Forlagsins





