Bækur brenna ekki

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður og gagnrýnandi ritar fróðlega grein um franska rithöfundinn Irene Nemirovsky í sunnudagsblað Moggans. Nafn Nemirovsky er nú á allra vörum enda rata gleymdar bækur hennar nú á náttborð lesenda um allan heim. Frægasta verk hennar, Suite Francaise, kemur út hjá Forlaginu í haust.

Skáldsagan Suite Francaise er af mörgun talin meistaraverk.  Nemirovsky hafði ætlað sér að skrifa bók í fimm bindum en lauk einungis við tvö. Í því fyrra rekur hún sögu fjölskyldna sem flýja París eftir að nasistar hernema borgina. Hún lýsir hinum ólíku stéttum í frönsku samfélagi og hvernig hver stétt um sig reynir á fáránlegan hátt að halda í eigin siði í samfélagi sem er í upplausn. Í seinna bindinu lýsir hún lífinu í litlu þorpi þar sem hluti bæjarbúa hefur samvinnu við þýska hernámsliðið og hættulegar ástir kvikna. Hún hugðist síðan skrifa framhaldið eftir því hvernig stríðið þróaðist en var sjálf handtekin og lést í gasklefanum í Auschwitz árið 1942.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd