Átakaleg saga frá Líbýu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Frá Líbýu

Við minnum áhugasama lesendur á hina rómuðu bók Í landi karlmanna eftir Hisham Matar. Þar er á ferðinni einstök saga um ungan dreng sem í Líbýu sem elst upp í skugga ógnarstjórnar Gaddafis. Morgunútvarpið ræddi við þýðanda bókarinnar, Ísak Harðarson, í morgun.

Suleiman er níu ára drengur sem elst upp  í Trípólí undir ógnarstjórn Gaddafis á áttunda áratugnum. Einn daginn er nágranni fjölskyldunnar dreginn á brott af svartklæddum útsendurum Gaddafis og smám saman rennur upp fyrir Suleiman að þeir hafa líka illan bifur á föður hans. Pískrið og óttinn magnast allt í kringum Suleiman og honum er ekki mikill stuðningur í móður sinni sem er ráðvillt, drykkfelld og bitur eftir að hafa verið gefin sér tvöfalt eldri manni, aðeins fjórtán ára gömul.

Í landi karlmanna eftir Hisham Matar er fyrsta bók höfundar sem hefur hlotið afar góðar móttökur, enda átakanleg og falleg í senn. Hún var meðal annars tilnefnd til Booker-verðlaunanna 2006 og Guardian-verðlaunanna 2006.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd