Guðbergur Bergsson opnar sýningu í Saltfisksetrinu í Grindavík á morgun, laugardaginn 3. júlí, þar sem hann sýnir áróðursveggspjöld sem hann hefur safnað í gegnum tíðina á ferðalögum sínum víða um heim. Í viðtali við Fréttablaðið í dag kemur fram að Guðbergur um hafi safnað spjöldunum á ferðalögum sínum undanfarin 35 ár en hugmyndin að sýningunni hafi fæðst í Berlín fyrir nokkrum árum. „Þar var í gangi svipuð sýning en sú einblíndi aðeins á áróður nasista auk þess sem lítið af útskýringum fylgdi með. Ég tek hins vegar mun fleiri dæmi, læt útskýringar fylgja með og leiði gestina í gegnum sýninguna við opnun hennar. Auk þess verður sýnd frægasta áróðursmynd allra tíma, Sigur viljans eftir Leni Riefenstahl.“
Guðbergur tekur fram að áróðursveggspjöld séu merkileg fyrir ýmsar sakir og meðal annars afhjúpi þau sögu þjóða. „Spjöldin sýna til dæmis hver fjárhagsleg staða þessara þjóða var á tilteknum tíma; sum eru gerð af vanefnum meðan einhverjum fjármunum hefur verið varið í önnur. Eins leiða þau í ljós hliðstæður í áróðri pólítískra andstæðinga. Einræðisherrar og stjórnmálaleiðtogar andstæðra fylkinga, eins og Stalín og Roosevelt fá svipaða glansmeðferð auk þess sem þjóðirnar og ólík stjórnmálaöfl tefla þarna fram sínum táknum í áróðursskyni.“ Viðtalið í heild sinni má lesa hér.
Sýningin verður opnuð á morgun kl. 14 og stendur til 26. júlí.





