Arnaldur toppar í Frakklandi

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Bók Arnaldar Indriðasonar, Harðskafi, fór beint  í efsta sæti heildarmetsölulista franska blaðins L’Express í liðinni viku. Útgefandinn þar í landi svífur skýjum ofar þessa dagana enda er metsölulisti L’Express talinn sá virtasti í landinu. Harðskafi kom út í Frakklandi þann 8. febrúar sl. en bókin hefur fengið skínandi góða dóma í frönsku miðlunum.

Meðal annars segir Birgitte Hernandez, gagnýnandi Le Point  “Arnaldur Indriðason magnar upp galdur. Frásagnatöfrar hans leiða söguhetjuna í gegnum ráðgátuna af ímyndunarafli, skilningi og innsæi”. Mireille Descombes hjá L’Hebdo skrifar eftirfarandi um bókina: “…hárfín flétta, lipur uppbygging þar sem mismunandi sjónarhornum er víxlað… Áhuginn vex með sérhverri nýrri rannsókn Erlendar Sveinssonar.”

Bækur Arnaldar njóta mikilla vinsælda á meginlandinu og það hefur komið fyrir að margar bóka hans séu samtímis á frönskum metsölulistum. Hann hefur þó ekki fyrr stokkið beint í fyrsta sætið líkt og nú. Til marks um dálæti Frakka má einnig geta þess að metsölustikan Datalib.net mælir nú Harðskafa í 1. sæti á lista yfir vinsælustu spennusögurnar aðra vikuna í röð og í  4. sæti á heildarlista vinsælustu bókanna, en í fyrri viku vermdi hún annað sætið.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd