
Glæpasagnahöfundarnir Arnaldur Indriðason og Lilja Sigurðardóttir ásamt Ragnari Jónssyni hafa undanfarna daga verið í Frakklandi á upplestrarferð ásamt því að sækja fjölsóttu glæpasagnahátíðina Quais du Polar sem haldin er árlega í Lyon.
Hátíðinni lauk í gær eftir viðburðarríka daga fyrir höfundana. Arnaldur Indriðason fylgdi þar eftir útgáfu á bók sinni Þýska húsið sem kom út í febrúar og Lilja Sigurðardóttir fylgdi eftir Gildrunni sem kom út í síðustu viku en báðir höfundar eru gefnur út af hinu virta forlagi Métailié.
Svo virðist sem að höfundarnir hafi heldur betur slegið í gegn en fyrirlestrar og upplestrar voru gríðarlega vel sóttir. Í Lyon hlýddu yfir 500 manns á höfundana fjalla um verkin sín og var ásóknin í undirritun hjá Arnaldi slík að röðin náði í utan um höllina þar sem viðburðurinn var haldinn og bækur Lilju Sigurðardóttur seldust upp á meðan árituninni stóð.
Höfundarnir hafa setið fyrir svörum í fjölmiðlum en það var í viðtali við Le Point sem Lilja Sigurðardóttir kom inn á það hvernig bankahrunið breytti sýn okkar Íslendinga á hvaða áhrif við sem þjóð getum haft á umhverfið, að við getum raunverulega haft áhrif á alþjóðasamfélagið. Hún hnykkti svo út með því að hún noti náttúruna með sama hætti og Raymond Chandler notist við vopnaða menn í verkum sínum „Þegar þú ert í vafa, þá dregurðu fram eldfjall“.
Við hjá Forlaginu vonum þó að ekkert verði eldgosið til að tefja heimför þeirra og óskum þeim góðrar ferðar heim aftur.





