Arnaldur og Lilja á toppnum

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Arnaldur Indriðason situr sem fastast á toppi franska glæpasagnalistans en bók hans Kyrrþey, fimmta bókin um rannsóknarlögreglumanninn Konráð, kom út í þýðingu Eric Boury í byrjun febrúar.
Bækur Arnaldar hafa komið út í Frakklandi í um tuttugu ár og njóta gríðarlegra vinsælda á meðal franskra lesenda. Í fyrra kom út skáldsagan Sigurverkið sem franskir lesendur hrifust mjög af og breikkaði lesendahópur Arnaldar umtalsvert við þá útgáfu. Franski útgefandi bókanna, Anne-Marie Métailie, er gríðarlega ánægð með viðtökur bóka Arnaldar á frönskum bókamarkaði og velgengni hans á metsölulistum í Frakklandi er til marks um miklar vinsældir hans þar í landi.
Á sama tíma og Arnaldur gerir það gott í Frakkalandi er Lilja Sigurðardóttir að sigra hjörtu finnsku þjóðarinnar. Þriðja bókin í Áróruseríunni, Náhvít jörð, var í síðasta mánuði fjórða mest selda bókin í Finnlandi, í öllum flokkum. Jafnframt náði bókin að vera mest selda hljóðbókin og mest selda rafbókin í Finnlandi í janúar.  Marjakaisa Matthiasson þýðir verk Lilju yfir á finnsku.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd