ALVARA MÁLSINS – Bókaþjóð í ólestri

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Laugardaginn næstkomandi, 21. janúar, verður haldin ráðstefna í Norræna húsinu undir yfirskriftinni ALVARA MÁLSINS – Bókaþjóð í ólestri. Þar verður fjallað um ískyggilegar niðurstöður rannsókna sem sýna að ört stækkandi hópur ungs fólks getur ekki lesið sér til gagns, hvað þá gamans.

Læsi telst lífsnauðsynleg færni í nútímasamfélagi enda þróun menningar og lýðræðis tæplega  hugsanleg án þeirrar kunnáttu. Bóklestur stuðlar að fjölbreyttum orðaforða og gerir fólki kleift að koma hugsunum sínum, vilja og áformum á framfæri. Ekkert slær bóklestri við í þjálfun á því verkfæri sem tungumálið er. Fyrir gáleysi stækkar sá hópur barna sem engan aðgang hefur að fjársjóðum fortíðar og framtíðar. Í erindum á ráðstefnunni verður greint frá gildi lesturs og lestrarfyrirmynda og bent á öflugar leiðir til að sporna við ólæsisþróuninni.

Sjálfsprottinn hópur rithöfunda stendur að undirbúningi ráðstefnunnar og það er von þeirra að hún marki upphaf að þjóðarátaki um eflingu lesturs og vitundarvakningu um læsi sem lífsgæði. Hópurinn skorar á stjórnvöld, stofnanir, fyrirtæki, skóla og heimili um allt land að taka í kjölfarið við keflinu og leggja sitt af mörkum til að snúa þróuninni við – það dugar ekkert minna – velferð og menning bókmenntaþjóðar er í húfi!

Dagskrá:
•    Ljótikór syngur
•    Ávarp – Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur
•    Lestur er málið: Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor og forstöðumaður Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
•    Læsi er skilningur: Daníel Andri Halldórsson, nemi í 10. bekk í Giljaskóla á Akureyri
•    Svavar Knútur syngur og leikur

kaffihlé

•    Lestrarhestamennska – heillandi fjölskyldusport: Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og lektor við Háskólann á Akureyri
•    Lestur er bæði yndisleg og uppbyggileg iðja: Guðmundur Engilbertsson, lektor kennaradeild og sérfræðingur á miðstöð skólaþróunar við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri

Dagskráin hefst kl. 14:00 og lýkur um kl. 16:00
Dagskrárstjóri er Eva María Jónsdóttir

Hópur rithöfunda vekur athygli á ALVÖRU MÁLSINS og stendur að ráðstefnunni í samvinnu við Rithöfundasamband Íslands, Reykjavík Bókmenntaborg Unesco, Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Norræna húsið.

Baráttan fyrir lestrinum á Facebook.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd