Allir lesa – landsleikur í lestri

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Allir lesa

Landsleikurinn Allir lesa fer nú fram í annað sinn, að þessu sinni á þorra. Keppnin hófst á bóndadaginn, föstudaginn 22. janúar og lýkur á konudaginn, sunnudaginn 21. febrúar. Opnað var fyrir skráningu liða föstudaginn 15. janúar en allir geta tekið þátt með því að stofna eða ganga í lestrarlið og skrá lestur sinn á vefinn allirlesa.is. Liðin geta verið stór eða smá, þau geta verið vinnustaðalið, fjölskyldur, vinahópar, leshringir, skólafélagar o.s.frv. Foreldrar eða afar og ömmur sem lesa með börnum sínum geta til að mynda stofnað fjölskyldulið og skráist lesturinn þá bæði á þann sem lesið er fyrir og þann sem les.

Landsleikurinn er tilvalin leið til að hrista fólk saman og skemmta sér við lestur um leið og lesið er til sigurs. Eins og áður skiptist liðakeppnin í þrjá flokka: vinnustaðaflokk, skólaflokk og opinn flokk. Þátttakendur mynda lið og skrá lestur á vefinn allirlesa.is. Þau lið sem verja samanlagt mestum tíma í lestur standa uppi sem sigurvegarar. Í lokin eru sigurlið heiðruð með viðurkenningum og verðlaunum.

Hvert lið velur liðsstjóra sem skráir liðið og lestur þess eða fær hvern einstakling til að sjá um eigin lestrarskráningu. Í hverju liði verið allt frá 3 og upp í 50 keppendur með einum liðsstjóra sem hvetur fólk til dáða og aðstoðar það við skráningu. Allir geta tekið þátt enda er landsleikurinn Allir lesa bæði sáraeinfaldur og stórskemmtilegur!

Að Allir lesa – landsleik í lestri standa Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO með stuðning frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Reykjavíkurborg.

#allirlesa

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd