„Afskaplega áhrifamikil lesning“

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Jón Atli Jónasson

Ágúst Borgþór rithöfundur og ötull menningarbloggari skrifar grein á dv.is í gær um nýja nóvellu eftir Jón Atla Jónasson og er hrifinn. Hann segir: „Í gær las ég pínulitla en ótrúlega magnaða bók sem er nýkomin út. Þetta er nóvella eða löng smásaga … og heitir Börnin í Dimmuvík. Bókin er aðeins 83 blaðsíður í litlu broti en afskaplega áhrifamikil lesning.” Hann rekur stuttlega söguefnið og finnst það vera „öðrum þræði könnun á því hvað stendur eftir af tilvistinni, hverjir eru grunnþættir mannlegrar tilveru, þegar búið er að svipta manneskjuna nær öllum bjargráðum, að ógleymdu flestu því sem telst til menningar og afþreyingar.“ Og samanburðarefnið er ekki af verri endanum: „Ég kallaði hana í huganum “Litla Sjálfstætt fólk” þegar ég var að lesa hana en sumt er líkt með þessum vægast sagt mislöngu sögum.“

Um stílinn á sögunni segir Ágúst Borgþór að Jón Atli nýti sér „þekkingu sína á sjónrænum miðlum, leikhúsi og kvikmyndum, því sagan er í senn feykilega myndræn og meitluð. Þrauthugsaður og markviss stíllinn veldur því að textinn nær stundum dáleiðandi tökum á lesendanum. Mæli eindregið með þessari sumarlesningu sem tekur stuttan tíma en lifir lengi með þeim sem lesa. Hún er auðlesin en lesturinn er erfið upplifun, hún kemur við tilfinningarnar.“

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd