Afburða sagnamaður

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Fréttir

Elísabet Brekkan, leiklistargagnrýnandi Fréttablaðsins, gerði sér ferð í Borgarnes til að hlusta á Einar Kárason segja frá atburðum Sturlungaaldar. Þar bregður hann sér í gervi Sturlu Þórðarsonar sem einnig er aðalpersóna síðustu skáldsögu Einars, Skálds, sem var ein af vinsælustu og mest seldu skáldsögum síðasta árs.

Elísabet hrífst innilega af sagnalist Einars, gefur sýningunni fjórar stjörnur í Fréttablaðinu í dag og segir meðal annars: „Á sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi er lífi svo sannarlega blásið í hinar gömlu hefðir frásagnargleðinnar. Einar Kárason rithöfundur heldur áhorfendum föngnum í meira en tvo klukkutíma og slær ekkert af. Hann leiðir okkur inn í Sturlungaöldina eins og hann hafi sjálfur verið þar meðal manna. … Hér er ekkert verið að möndla með neina búninga, lýsingu né nokkra effekta. Morðin og lýsingarnar á þeim stóðu algerlega ein og sér í loftinu í kjarnyrtri frásögn Einars.“

Elísabet finnst Einar rekja söguna af mikilli andagift: „Hann segir Sturlungu og í raun Íslandssöguna sjálfa með skýrum og ljósum hætti þannig að allir hafa gaman og gagn af og skilja það sem kannski reynist mörgum tyrfið stagl í lestri. Einar gæðir persónu Sturlu sem sögumanns holdi og blóði og persónuleika sem áheyrendum fellur við og hlusta á með athygli. Ekki sakar að Sturla “upplýsir” um ýmislegt sem ekki var vitað áður, t.d. það að hann sé höfundur Grettissögu og Njálu, auk þeirra bóka sem alltaf hafa verið á afrekalista þessa stórbrotna höfundar.

Segja má að Einar sé með þessari stórfróðlegu og skemmtilegu sagnaskemmtan að endurvekja hina munnlegu sagnahefð, sem var undanfari og lifði samtímis skrifuðum bókmenntum að fornu. Það ber að þakka.“ Og hún mælir með sýningunni fyrir fólk allt frá tíu ára aldri.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd