Ævar Þór einn af bestu barnabókahöfundum Evrópu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Stórtíðindi af Bókamessunni í London. Alþjóðlega barnabókahátíðin Hay Festival hefur kynnt hinn svokallað Aarhus 39-lista, 39 bestu evrópsku barnabókahöfundana undir 39 ára aldri. Ævar Þór Benediktsson, best þekktur sem Ævar vísindamaður, var þar á meðal, einn Íslendinga. Hann er staddur í London til að veita viðurkenningunni móttöku og taka þátt í pallborðumræðum um barnabækur.

Ævar er að vonum ánægður: „Þetta er mikill heiður og virkilega gaman að komast þarna á blað. Íslenskar barnabækur eru vel á pari við þær erlendu.”

Höfundarnir á listanum koma til með að vinna saman að metnaðarfullu verkefni fyrir menningarborg Evrópu, Aarhus. Til stendur að halda bókmenntahátíð þar síðar á árinu auk þess sem að út koma tvö söfn með verkum höfundanna á dönsku og ensku.

Í dómnefnd sátu þrír virtir barnabókahöfundar; Kim Fupz Aakeson frá Danmörku, Ana Cristina Herreros frá Spáni og Matt Haig frá Englandi. Höfundarnir sem valdir voru fengu það verkefni að skrifa sögu byggða á þemanu „Ferðalag“ en þær koma út í fyrrnefndum söfnum hjá Alma Books í Bretlandi og Gyldendal í Danmörku. Saga Ævars, ,,Bókaflóttinn mikli”, fjallar um einstaklega vaskan bókasafnsfræðing sem kemst í hann krappan.

Næsta bók Ævars kemur út nú í maí og verður sú þriðja í röðinni um bernskubrek Ævars vísindamanns. Hún ber nefnið Gestir utan úr geimnum. Bókin er ákveðinn lokahnykkur í þriðja Lestrarátaki Ævars en að vanda voru fimm heppnir krakkar dregnir út sem verð að persónum í bókinni. Að þessu sinni var það Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem dró úr pottinum. Aldrei hafa verið lesnar fleiri bækur en í ár, rúmlega 63 þúsund talsins. Ævar hefur boðað að átakið verði haldið í fjórða sinn næsta vetur.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd