Að gæta bróður míns vel tekið!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Antti Tuomainen

Ný bók hins finnska Antti Tuomainen Að gæta bróður míns, sem einnig er höfundur verðlaunabókarinnar Græðarans, hlaut frábæra dóma hjá þeim Friðriku Benónýsdóttur og Þorgeiri Tryggvasyni í Kiljunni í gærkvöldi.

Að gæta bróður míns er fyndin og átakanleg kynslóðasaga með vænni skvettu af glæpasögu. Bókin segir frá Klaus Haapala sem hefur reynt hvað hann getur að feta aðra slóð en faðir hans og afi – sem báðir leiddust út á braut glæpa – þangað til að einn daginn allt breytist og veröld Klaus snýst á hvolf.

Um bókina hafði Friðrika m.a. þetta að segja: „Hann gerir þetta alveg ofboðslega vel … Þessar persónur eru af holdi og blóði – manni finnst maður þekkja þá … Honum tekst að koma manni algjörlega í opna skjöldu … Hrikalega skemmtileg! … Það eiga bara allir að lesa þessa bók sem hafa gaman af skemmtilega og vel skrifuðum bókum.“

Þorgeir tók í sama streng og bætti við að bókin væri „virkilega skemmtileg“.  Egill Helgason sagði sömuleiðis að lesendur ættu von á góðri kvöldstund við lestur Að gæta bróður míns.

Ekki láta þessa frábæru bók fram hjá þér fara!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd