
Yndismúsin Maxímús Músíkús og vinkona hans Petítla Pírúetta taka þátt í Menningarnótt í ár og troða upp í Hörpu nk. laugardag milli kl. 14.40 og 16. Þessi dáða, tónelska mús á sér ófáa aðdáendur. Um hana hafa komið út fjórar frábærar bækur en ævintýri hennar hljómaði fyrst á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í maí 2008. Í kjölfarið fylgdi músagangur víða veröld og hafa sögur af Maxa komið út á mörgum ólíkum tungumálum eins og kínversku, þýsku, færeysku, kóreönsku, portúgölsku og ensku.
Smelltu til að sjá nánari upplýsingar um dagskrána í Hörpu.





