Sjón hlýtur Menningarverðlaun DV í fjórða sinn

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Menningarverðlaun DV voru veitt í gær, 15. mars, við hátíðlega athöfn í Iðnó. Í flokki bókmennta hreppti Sjón verðlaunin fyrir þriðja bindi þríleiksins Codex 1962, Ég er sofandi hurð. Afhendingin markar stórtíðindi í sögu menningarverðlaunanna þar sem þetta er í fyrsta skipti sem höfundur hlýtur þau fyrir öll bindin í þríleik. Við þetta bætist að Sjón er fyrsti rithöfundurinn sem hreppir verðlaunin fjórum sinnum, því auk þríleiksins hlaut hann þau fyrir skáldsöguna Mánastein árið 2013.

Menningarverðlaun DV er elstu bókmenntaverðlaun í landinu og hafa gjarnan fallið í hlut verka sem þykja djörf og synda gegn meginstraumum. Fyrsti hluti Codex-þríleiksins, Augu þín sáu mig, kom út árið 1994, annar hlutinn, Með titrandi tár, árið 2001 og sá þriðja og síðasti nú fyrir jólin. Að því tilefni voru bækurnar allar gefnar út í einu glæsilegu bindi.

Bækurnar eru einstakar í íslenskri bókmenntasögu. Sjón er sannur sagnameistari og leikur sér að hinum ýmsum stílum og bókmenntategundum, í verkunum ægir saman ólíkum tímaskeiðum, goðsögum, ævintýrum, sagnfræði og bláköldum raunveruleika. Að sama skapi eru bækurnar allt í senn, fyndnar, dramatískar, áleitnar og léttleikandi. Codex 1962 er magnað stórvirki sem ber öll aðalsmerki höfundar.

Við óskum Sjón hjartanlega til hamingju!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd