Ævintýragjarni eftirlaunaþeginn Edda

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Jónína Leósdóttir

Fyrsta bók Jónínu Leósdóttur um Eddumál, Konan í blokkinni, kom út snemma árs í fyrra og hlaut afar góðar viðtökur bæði gagnrýnenda og lesenda. Strax 3. janúar kom út önnur bókin um ævintýragjarna og úrræðagóða eftirlaunaþegann Eddu, Stúlkan sem enginn saknaði.

Ískaldan febrúarmorgun er stúlka stungin með hnífi þar sem hún situr á bekk við Ægisíðuna. Örskömmu síðar á Edda leið fram hjá. Hún lætur sér ekki nægja að kalla í lögregluna heldur ákveður að rannsaka málið sjálf.

Um sama leyti leggja hjón og uppkomin dóttir þeirra af stað til Íslands, föðurlands húsmóðurinnar. Þar hyggjast feðginin sækja ráðstefnu en dvölin verður martraðarkennd fyrir konuna sem trúir Eddu fyrir viðkvæmu fjölskylduleyndarmáli.

Eins og fyrri bókin er Stúlkan sem enginn saknaði er svolítið óhefðbundin glæpasaga en hún ber öll bestu einkenni Jónínu sem höfundar og er í raun fjölskyldusaga samhliða glæpaþræðinum.

Persóna Eddu hefur auk þess vakið töluverða athygli enda óvenjuleg á glæpasviðinu. Í viðtali við Morgunblaðið benti Jónína á að einmitt þess vegna hefði hún gert hana að aðalpersónu: „Edda tilheyrir samfélagshópi sem ekki er nógu sýnilegur eða virtur, hún er stimpluð gömul kerling og þar með óáhugaverð og nánast dæmd úr leik. Það var líka akkúrat þess vegna sem ég valdi að gera hana að aðalpersónu. Ég fór aðeins inn á það í Konunni í blokkinni hvernig eldri konur eru nánast ósýnilegar þeim sem yngri eru og virka allar hver annarri líkar. Þetta mætti gjarnan breytast.“

Það er óhætt að mæla með bókunum um Eddumál fyrir þá sem vilja lesa spennandi krimma með mikla tilfinningalega dýpt.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd