
Kæru bókaunnendur, missið ekki af Bókakonfekti Forlagsins á Rósenberg, öll miðvikudagskvöld í nóvember. Upplestrarkvöldin sú eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks og þar myndast notalegt og hátíðlegt andrúmsloft. Bækur höfunda eru seldar á staðnum og eins og áður hafa höfundar verið liðlegir við að árita ef þess er óskað. Fyrstu 30 gestirnir hvert kvöld fá afhenta drykkjarmiða sem hægt er að nýta á barnum. Sjáumst á miðvikudögum í nóvember!
Sigrún Eldjárn – Sigurfljóð hjálpar öllum
Pétur Gunnarsson – Skriftir
Sóley Eiríksdóttir og Helga Guðrún Johnson – Nóttin sem öllu breytti
Guðmundur Óskarsson – Villisumar
Gunnar Helgason – Pabbi prófessor
Andri Snær Magnason – Sofðu ást mín
Hallgrímur Helgason – Lukka
Ragnheiður Eyjólfsdóttir – Skuggasaga II – Undirheimar
Gunnar Þór Bjarnason – Stríðið mikla 1914–1918
Ævar Þór Benediktsson – Þín eigin hrollvekja
Þorgrímur Þráinsson – Henri og hetjurnar
Álfrún Gunnlaugsdóttir – Fórnarleikar
Þórarinn Eldjárn – Þættir af séra Þórarinum og fleirum
Sævar Helgi Bragason – Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna
Vigdís Grímsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir – Elsku Drauma mín





