Ægifagrar lýsingar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Gauti Kristmannsson hafði stór orð um Skáldsögu um Jón eftir Ófeig Sigurðsson í Víðsjá RÚV í gær. Að hans mati tekst Ófeigi firna vel upp í nýstárlegum stíl sögunnar og bréfaformið segir hann að færi lesanda nær sögutíma og persónum. Hann er heillaður af umhverfislýsingunum með hrikalegu Kötlugosinu og hrifinn af því að umhverfið fjandsamlega skuli ekki vinna á ástinni sem bréf Jóns senda norður í land. Ekki er Gauti síst ánægður með ljóðræna kafla sögunnar sem oft birta annað vitundarsvið en lýsingarnar á hvunndegi þeirra bræðra í hellinum: „Hugleiðingar þær og lýsingar sem í þessum köflum birtast geta verið ægifagrar eins og lýsingin á landskjálftanum 11. september 1755 sem án nokkurs vafa má telja til háleitra afreka í íslenskum bókmenntum í ár. Það eru hins vegar ekki aðeins þessir kaflar sem nautn er að lesa. Heildin sem svo vel er saman sett færir okkur ekki aðeins afbragðsgott skáldverk heldur lýsir einnig upp þær hugmyndir og stefnur sem enn setja mark á líf okkar. Um leið minnir það okkur á náttúruna sem allt gefur og engu eirir.”

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd