Þúsund mikilvægir dagar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Sæunn Kjartansson

Í dag kemur út undir merkjum Máls og menningar spáný bók eftir Sæunni Kjartansdóttur, höfund hinnar geysivinsælu bókar Árin sem enginn man, en hún nefnist Fyrstu 1000 dagarnir. Málþing um efni bókarinnar fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 27. mars.

Börn fæðast með alla burði til að verða skynsamar, réttsýnar og góðar manneskjur og það er undir okkur fullorðna fólkinu komið að gera þeim það kleift.

Rannsóknir sýna að fyrstu þúsund dagarnir í lífi barns – frá getnaði til tveggja ára aldurs – hafa afgerandi áhrif á framtíðarheilbrigði þess. Ástrík og næm samskipti á þessum tíma leggja mikilvægan grunn að þroska barnsins sem vitsmuna-, tilfinninga- og félagsveru. Þess vegna þarf það nærgætna umönnun frá fólki sem þykir vænt um það, skilur þarfir þess og hefur þær í fyrirrúmi.

Fyrstu 1000 dagarnir er aðgengileg handbók fyrir foreldra sem byggir á tengslakenningum, nýjustu rannsóknum í taugavísindum og sálgreiningu. Hér eru gefin góð ráð um hvernig foreldrar geta búið sig undir fæðingu barns og annast það og örvað fyrstu árin með það að leiðarljósi að byggja upp heilbrigðan og ástríkan einstakling.
Sæunn Kjartansdóttir er einn af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna sem sérhæfir sig í tengslaeflandi meðferð foreldra og ungbarna og hefur sinnt sálgreiningu í aldarfjórðung.

Málþing vegna útgáfu bókarinnar verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins, föstudaginn 27. mars kl. 14–16.

Erindi flytja:
Sigrún Júlíusdóttir, prófessor
Svava Björg Mörk, leikskólastjóri
Michael Clausen, barnalæknir
Guðbrandur Árni Ísberg, sálfræðingur
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir

Fundarstjóri: Gunnlaug Thorlacius, formaður Geðverndarfélags Íslands

Aðgangur er ókeypis og öllum velkominn.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd