Þetta vilja börnin sjá!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Dimmalimm-verðlaunin

Sunnudaginn 29. janúar kl. 14 verður opnuð sýningin Þetta vilja börnin sjá! í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þetta vilja börnin sjá! er sýning á myndskreytingum úr nýútkomnum íslenskum barnbókum og hefur slík sýning verið haldin árlega í Gerðubergi í tíu ár. Þátttakendur á sýningunni keppa jafnframt um íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm.

Við opnun sýningarinnar á sunnudaginn verður tilkynnt um hver vinnur Dimmalimm-verðlaunin fyrir bestu myndskreytingarnar í íslenskri barnabók árið 2011. Þær bækur sem koma út á vegum Forlagsins og eru með í sýningunni eru Komdu, höldum veislu með myndum eftir höfundinn Björk Bjarkadóttur, Hávamál með myndum eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur, Dans vil ég heyra með myndum eftir Óskar Jónasson, Náttúrugripasafnið með myndum eftir höfundinn Sigrúnu Eldjárn og Af hverju gjósa fjöll? með myndum eftir Þórarinn Má Baldursson.

Sýningin á myndskreytingunum stendur til 1. apríl og er opin virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd