Volcano Island
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 144 | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 144 | 1.490 kr. |
Um bókina
Út er komin ljósmyndabókin Volcano Island eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Stórbrotin bók sem fangar sögulegan tíma.
Í bókinni má finna einstakar myndir af gosunum í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi ásamt fróðleik um tildrög gosanna og framvindu í samhengi við jarðsögu Íslands. Sigurgeir fór í ótal ferðir upp að gossvæðunum í vor en í bókinni má aukinheldur finna myndir eftir fleiri ljósmyndara.
Texta bókarinnar ritar Sigurður Steinþórsson prófessor í jarðfræði.
Sigurgeir Sigurjónsson þekkir landslagið þarna syðra afar vel enda hefur hann um áratugaskeið myndað náttúruperlur landsins. Hann er án efa vinsælasti náttúruljósmyndari okkar Íslendinga en bækur hans, á borð við Lost in Iceland, The Little Big Book og Íslendingar, hafa selst í tugþúsundum eintaka.
Bókin er 144 síður í mjúku broti, texti hennar er á ensku.