Við ættum öll að vera femínistar

Almenn rit

Við ættum öll að vera femínistar

eftir Chimamanda Ngozi Adichie

2017 · 52 bls.

Veldu snið

1.690 kr.

Til á lager

Um bókina

„Kynferði skiptir máli hvarvetna í veröldinni. Og í dag langar mig til fara fram á að við byrjum að láta okkur dreyma um og búa til öðruvísi heim. Réttlátari heim. Heim þar sem glaðari karlar og glaðari konur eru samkvæmari sjálfum sér. Og við byrjum svona: Við verðum að ala dætur okkar upp á nýjan hátt. Og við verðum líka að ala syni okkar upp á nýjan hátt.“

Chimamanda Ngozi Adichie er fædd árið 1977 í Nígeríu. Hún hefur skrifað þrjár skáldsögur sem hafa notið verðskuldaðrar hylli og hlotið mörg verðlaun og viðurkenningar fyrir ritstöf sín.

Við ættum öll að vera feministar er endurskoðað erindi sem hún hélt í desember á TEDxEuston-ráðstefnunni árið 2012, en það er árleg ráðstefna um Afríku og málefni henni tengd.

Þýðandi er Ingunn Ásdísardóttir.

Karfan þín

Valmynd