Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Vandræðaskáld
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1991 | 212 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1991 | 212 | 2.990 kr. |
Um bókina
Vandræðaskáld er frásögn hins kunna breska rithöfundar og orðabókarsmiðs Samuels Johnson af ævi samtímamanns síns, skáldsins Richards Savage. Johnson, sem var uppi á 18. öld, var eftir dauða sinn hylltur sem mesti bókmenntajöfur sinna tíma en lífshlaup hans var markað erfiðleikum, deilum og þunglyndi eins og greint er frá í inngangi að þessu riti. Þekking hans á bókmenntum, ritsnilld og hin gríðarlegu fræðiafrek sem orðabók hans er til vitnis um, auk litríks persónuleika Johnsons, hafa þó markað honum óumdeildan sess sem eins af merkilegustu rithöfundum Breta fyrr og síðar.
Atli Magnússon greinir í inngangi frá ævi og verkum Johnsons og tíðaranda Lundúna á tímum þessara tveggja sérvitringa.