Úr sagnabrunni Hólmsteins Helgasonar á Raufarhöfn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 430 | 5.990 kr. |
Úr sagnabrunni Hólmsteins Helgasonar á Raufarhöfn
5.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 430 | 5.990 kr. |
Um bókina
Hólmsteinn Helgason (1893–1988) ólst upp á Langanesi en fluttist ungur til Raufarhafnar og bjó þar til æviloka. Ungur sótti hann sjóinn frá Skálum á Langanesi og hóf fáum árum síðar eigin útgerð frá Raufarhöfn undir nafninu Hólmsteinn Helgason hf. og er félagið enn í fullum rekstri. Hólmsteinn var forystumaður margra verkefna á sviði félags- og atvinnumála og oddviti Raufarhafnarhrepps í fjölda ára. Hólmsteinn var kjörinn heiðursborgari Raufarhafnarhrepps og sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir félagsmálastörf.
Hólmsteinn hóf snemma að skrifa ýmsar minningar frá æsku- árum en einnig sögur og sagnir sem annars hefðu glatast. Sumt af því efni birtist í blöðum, tímaritum og útvarpi en annað hefur hvergi komið fram.
Í bókinni er dregið saman megnið af því sem Hólmsteinn ritaði og sem fullyrða má að allir sem áhuga hafa á þjóðlegum fróðleik munu njóta að lesa.