Tímarit Máls og menningar 2026 4. hefti

Almenn rit

Tímarit Máls og menningar 2026 4. hefti

Veldu snið

3.690 kr.

Til á lager

Um bókina

Þegar heftið var á leið í umbrot bárust þær gleðifregnir að kanadísk-íslenska skáldið Anne Carson hefði hlotið Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Við óskum skáldinu innilega til hamingju og hlökkum til að kafa betur í verkin hennar á síðum tímaritsins við tækifæri. Hér í fjórða og síðasta hefti ársins gerum við öðrum Nóbelsverðlaunahafa hátt undir höfði. Olga Tokarczuk er nýkrýndur verðlaunahafi alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness en í heftinu eru tvær fræðigreinar um verk hennar. Guðni Elísson skrifar um skáldsöguna Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu og Sigrún Margrét Guðmundsdóttur um Empuzjon. Þess má geta að pólski verðlaunahafinn hefur komið áður nýlega við sögu í TMM, en fyrir tveimur árum síðan birtum við smásögu hennar „Dansarinn“, í þýðingu Steinunnar Helgadóttur. Vilborg Bjarkadóttir kynnir niðurstöður úr þjóðfræðilegri rannsókn á menningararfi plantna og fræja og Sölvi Halldórsson flytur fréttir frá hinsegin bókmenntahátíðinni, Queer Situations, sem fram fór síðasta vor. Guðrún Hannesdóttir opnar heftið með glæsilegu ljóði og Kristín Ómarsdóttir á sögu í heftinu sem ber kynngimögnuðum frásagnarkrafti hennar fagurt vitni. Þá birtum við glænýja þýðingu á sígildri sögu Jorge Luis Borges, „Bókasafninu í Babel“, en Eiríkur Gauti Kristjánsson þýddi. Helga Dögg Ólafsdóttir á forsíðuna sem minnir á eldri forsíður Tímaritsins.

Karfan þín

Valmynd