Tímanna safn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2024 | 220 | 8.090 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2024 | 220 | 8.090 kr. |
Um bókina
Fjallað er í máli og myndum um kjörgripi sem varðveittir eru í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Þeir endurspegla fjölbreytta safneign og er t.a.m. fjallað um bækur, handrit, einkaskjöl, tímarit og hljómplötur. Bókin er gefin út í tilefni af 30 ára afmæli Þjóðarbókhlöðu en 1994 sameinuðust Landsbókasafn og Háskólabókasafn undir einu þaki.
Safnið á sér þó sögu sem nær aftur til ársins 1818 þegar Landsbókasafn, sem í fyrstu hét Stiftsbókasafn, var stofnað. Á þessum ríflega 200 árum hefur safnkosturinn vaxið og starfsemin tekið breytingum.
Með bókinni er ætlunin að varpa ljósi á fjölbreytni safnkostsins. Í henni er vakin athygli á efni sem lítið hefur verið fjallað um áður, í bland við þekktari gersemar í safnkostinum. Birtar eru ljósmyndir af hverjum kjörgrip ásamt texta þar sem gerð er grein fyrir honum. Höfundar texta eru bæði núverandi og fyrrverandi starfsmenn safnsins.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar