Taktu til í lífi þínu!
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 220 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 220 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 490 kr. |
Um bókina
Listin að grisja og endurskipuleggja með japönsku KonMari-aðferðinni.
Er óreiðan á heimilinu að fara með þig? Allar skúffur troðfullar og skáparnir að springa? Staflar og hrúgur í öllum herbergjum, sama hve oft er tekið til? Þá gæti verið tímabært að grisja. Fara skipulega í gegnum allar eigur þínar, losa þig við það sem þú þarfnast ekki og veitir þér enga gleði, og raða því sem eftir er af skynsemi í hirslurnar.
Aðferðin sem hin japanska Marie Kondo kynnir í þessari bók hefur farið sigurför um heiminn enda er hugmyndafræðin að baki henni bæði snjöll og einföld. Og þegar heimilið er orðið snyrtilegt í eitt skipti fyrir öll, hlutirnir færri og skipulagið betra, þá rofar líka til í huganum: hugsunin skýrist, sjálfstraustið eykst og verkefnin framundan verða yfirstíganleg.
KonMari-aðferðin er lykill að nýju og betra lífi!