Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 196 | 3.190 kr. |
Um bókina
Hér er sagt frá fimmtíu árum úr sögu sveitabæjar, sem um tíma varð miðstöð athafna og umsvifa í Tálknafirði.
Á Suðureyri ráku Norðmenn hvalveiðistöð á árunum 1893-1911 með tilheyrandi framkvæmdum.
Pétur A. Ólafsson konsúll á Patreksfirði gerði út selveiðiskipið Kóp frá Suðureyri 1916-17. Kópur stundaði selveiðar í Grænlandsísnum 1916-1917, en fórst undan Herdísarvík í október 1917.
Aftur var starfrækt hvalveiðistöð á Suðureyri árin 1935-1939, og hún var þá var sú eina á landinu.
Nú er Suðureyri í eyði, en starfsemin þar lagði grunninn að kauptúninu sem nú heitir Tálknafjörður.
Einnig er að finna í bókinni stutt ágrip af sögu Tálknafjarðar fram til þess tíma að hvalveiðar hófust.
Pétur Bjarnason, höfundur bókarinnar, ólst upp á Sveinseyri í Tálknafirði og þekkir þar vel til. Frá Sveinseyri blasa rústir hvalstöðvarinnar við og skorsteininn ber við himin. Hvalbein voru á hverjum bæ í sveitinni, rifbein voru notuð í hlunna og árefti og hryggjarliðir úr hvölum voru hin ákjósanlegustu sæti.