Södd og sátt – án kolvetna
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2014 | 216 | 1.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2014 | 216 | 1.290 kr. |
Um bókina
- Langvarandi mettunartilfinning
- Bætt stjórn á matarlyst
- Orka sem endist út daginn
- Minni sykurþörf
- Betri svefn
- Þyngdartap án svengdar
- Minni hætta á ýmsum lífsstílstengdum sjúkdómum
LCHF-mataræðið hefur sannarlega slegið í gegn á Norðurlöndum og meðal annars er nú talið að fjórðungur Svía styðjist við það. Þetta er ekki enn einn matarkúrinn, heldur lífsstílsbreyting þar sem áhersla er lögð á mat úr hreinu og náttúrulegu hráefni með fáum eða engum aukaefnum, mikið af grænmeti, gott kjöt og ferskan fisk. Kolvetnaneyslu er haldið í lágmarki en fita er mikilvægur orkugjafi.
Spurningin sem margir spyrja þegar þeir hafa breytt um lífsstíl og skorið kolvetnaneysluna niður við trog er: Af hverju gerði ég þetta ekki fyrir löngu? Reglurnar eru einfaldar, maturinn er bragðgóður, spennandi og saðsamur, og fólk nær stjórn á blóðsykrinum, matarlystinni og líkamsþyngdinni.
Læknirinn Annika Dahlqvist, sem kalla má upphafsmann LCHF-lífsstílsbyltingarinnar, skrifar formála að bókinni og segir þar meðal annars: „Ástæðan fyrir miklum vinsældum LCHF-mataræðis er einfaldlega sú að það virkar. LCHF virkar bæði gegn kvillum og ofþyngd. Og þau tíðindi berast frá manni til manns.“
Hjalti Nönnuson þýddi.
**** 1/2
Mér finnst þetta mjög skemmtileg bók. Hún er vel upp sett, með góðum skýringum og mjög góðum uppskriftum.
Anna Kristín Halldórsdóttir / Pjatt.is