Sítrónur og náttmyrkur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 59 | 2.890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 59 | 2.890 kr. |
Um bókina
Sítrónur og náttmyrkur er næm og seiðmögnuð ljóðabók um umskipti og áttun. Hér brýst fram einstök höfundarrödd sem leiðir lesandann í gegnum öldurót og norðanhríð, ljóssprengingar og náttmyrkur, ugg, vá og kærleik.
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er rithöfundur og sviðslistakona. Hún hefur samið og unnið að leiksýningum, gjörningum og innsetningum hérlendis og erlendis um árabil. Ritverk hennar og ljóð hafa birst í ýmsum útgáfum og heyrst í útvarpi.
Sítrónur og náttmyrkur er hennar fyrsta ljóðabók.
Rödd
Í risi fyrir ofan kirkjugarð dreymir mig
sítrónu í lófa mínumhún hafði setið föst í hálsinum alla tíð
án þess að ég vissi af henninýja röddin kemur mér á óvart
hún er vínrautt flauelóþekkjanleg
í hvert sinn sem ég kyngi
finn ég hita þar sem hún var áður