Sigraðu sjálfan þig – aftur og aftur!

Almenn rit

Sigraðu sjálfan þig – aftur og aftur!

eftir Ingvar Jónsson

2022 · 232 bls.

Veldu snið

3.990 kr.

Til á lager

Um bókina

Sigraðu sjálfan þig – aftur og aftur! er verulega endurbætt útgáfa af Sigraðu sjálfan þig sem kom út 2018 og hefur verið uppseld síðan 2019.

Þetta er einstök bók sem getur liðsinnt öllum þeim sem hafa hug á að brjótast úr fari vanans, stefna hærra og sækja lengra – hvort heldur er í starfi eða einkalífi.

Bókin er byggð á hugmyndafræði markþjálfunar og unnið er markvisst með fjölmörg verkfæri sem auðvelda lesandanum að ná markmiðum sínum og sigra sjálfan sig.

Höfundur bókarinnar, Ingvar Jónsson, er stjórnunar- og markaðsfræðingur og PCC – markþjálfi sem hefur hjálpað þúsundum einstaklinga að ná markmiðum sínum, bæði hér heima og erlendis. Ingvar hefur skrifað nokkrar bækur sem gefnar hafa verið út á Íslandi og víðar. Árið 2020 var hann valinn einn af 101 áhrifamestu markþjálfum heims.

Karfan þín

Valmynd