Samtímarímur

Ljóð og leikrit

Samtímarímur

eftir Gunnar J. Straumland, Helgi Zimsen, Sigrún Ásta Haraldsdóttir og Sigurlín Hermannsdóttir

2025 · 83 bls.

Veldu snið

4.290 kr.

Til á lager

Um bókina

Í Samtímarímum eru fjórir splunkunýir rímnaflokkar eftir jafnmörg skáld. Rímurnar eru ortar samkvæmt fornri hefð undir þekktum rímnaháttum, skipt er um hátt við hverja rímu og allar hefjast þær á mansöng. Eins og nafn bókarinnar gefur til kynna glíma höfundar rímnanna við yrkisefni sem mjög eru til umræðu á líðandi stundu. Sú fyrsta segir frá forsetakosningum 2024, næsta er um umferðina í Reykjavík, sú þriðja fjallar um laxeldi í sjó og fjórða ríman er um gervigreindina. Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstýrir og skrifar inngang.

Karfan þín

Valmynd