Saga Alþýðusambands Íslands – án öskju

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 384 10.360 kr.
spinner

Saga Alþýðusambands Íslands – án öskju

10.360 kr.

Saga Alþýðusambands Íslands - án öskju
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 384 10.360 kr.
spinner

Um bókina

Saga Alþýðusambands Íslands í tveimur veglegum bindum. Hér er sögð saga ASÍ og íslenskrar verkalýðsbaráttu í heila öld en sambandið var stofnað árið 1916.

Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur er höfundur, og hefur hann unnið að sögurituninni í nokkur ár og viðað að sér afar umfangsmiklum heimildum um íslenska alþýðusögu og samfélagsmál.

Verkið hefur átt sér langan aðdraganda og mikil og vönduð undirbúningsvinna hefur verið unnin sem skilar sér í metnaðarfullu og glæsilegu riti um íslenskt samfélag og sögu, frá fyrstu tilraunum til stofnunar alþýðusamtaka gegnum hörð stéttaátök kreppuáranna, samfélagsbreytingar á eftirstríðsárum, alþýðutryggingar, húsnæðismál, jafnréttismál, lífeyrisréttindi, menntamál, alþjóðamál og ótalmargt annað sem íslensk alþýðusamtök komu að, og allt til nútímans.

Fyrra bindið ber undirtitilinn Í samtök og nær yfir tímabilið 1916-1960 og hið síðara kallast Til velferðar og nær frá 1960-2010.

Í bókunum er að finna mörg hundruð myndir sem tengjast íslenskri verkalýðsbaráttu og alþýðusamtökum og var víða leitað fanga við öflun mynda, enda er þar margt afar forvitnilegt að sjá. Einnig eru í bókinni skýringarmyndir og töflur sem segja sögu þróunar í kjaramálum og á mörgum öðrum sviðum, listar yfir stór og smá aðildarfélög ASÍ frá upphafi, litmyndir af öllum þekktum 1. maí-merkjum samtakanna og margt annað efni sem styður og skreytir frásögnina.

Bækurnar eru samtals nær 800 blaðsíður í stóru broti og eru bæði fáanlegar í vandaðri öskju og einnig án öskju.

Tengdar bækur

Saga: 2021 LIX: 1
4.190 kr.
Á fjarlægum ströndum
5.890 kr.
Krapaflóðin á Patreksfirði 1983
2.990 kr.
Ljósmæðrafélag Íslands
12.990 kr.
Gleymið ekki að endurnýja - saga Happdrættis Háskóla Íslands
5.890 kr.
Hér er kominn gestur
5.790 kr.

INNskráning

Nýskráning