Pipraðir páfuglar – Matargerðarlist Íslendinga á miðöldum

Almenn rit

Pipraðir páfuglar – Matargerðarlist Íslendinga á miðöldum

eftir Sverrir Tómasson

2017 · 172 bls.

Veldu snið

Um bókina

Bók þessi er tvíþætt. Fyrri hluti hennar fjallar um mat og mataræði Íslendinga á miðöldum og er bókmenntaleg leiðsögn um venjur og siði forfeðranna við borðhald.

Hún á að sýna hvernig þekking á mataræði hjálpar lesendum fornbókmenntanna að skilja betur manngerðir tímanna og athafnir þeirra sem þá koma við sögu. Maturinn er einnig bundinn við ákveðnar stéttir; höfðinginn og tröllin snæða annað en sauðsvartur almúginn.

Síðari hlutinn eru uppskriftir að réttum sem voru á borðum Skarðverja, aðalsmanna í Vestfirðingafjórðungi á 14. og 15. öld. Uppskriftirnar hafa varðveist í lækningabók, sem gerð var að frumkvæði þeirra um 1500.

Dr. Sverrir Tómasson er fyrrverandi prófessor við stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Karfan þín

Valmynd