Um bókina
Ólöf Ólafsdóttir, konditori og liðsmaður í íslenska kokkalandsliðinu, hefur frá unga aldri verið hugfangin af köku- og eftirréttagerð og veit fátt skemmtilegra en að útbúa góða og ljúffenga eftirrétti.
Ástríða Ólafar blómstar í þessari fallegu bók þar sem hún hefur tekið saman fjölbreyttar uppskriftir af algerlega ómótstæðilegum og fagurlega skreyttum eftirréttum! Réttirnir njóta sín einstaklega vel í listrænum ljósmyndum Ruthar Ásgeirsdóttur, ljósmyndara og móður Ólafar.
Ómissandi bók fyrir sanna sælkera!













