Ný sýn á heilabilun

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2007 2.325 kr.
spinner

Ný sýn á heilabilun

2.325 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2007 2.325 kr.
spinner

Um bókina

Bókin markaði þáttaskil þegar hún kom fyrst út árið 1997 og hefur haft gífurleg áhrif á það hvernig staðið er að umönnun sjúklinga með heilabilun og ekki síður hvernig komið er fram við þá sem persónur. Með útkomu þessarar bókar eru kenningar Kitwoods í fyrsta skipti aðgengilegar á íslensku en það er Svava Aradóttir sem þýðir.

Í bókinni eru sett fram ný viðhorf til umönnunar fólks með heilabilun. Kenningar Toms Kitwoods byggja á þeirri hugsun að heilabilun feli ekki bara í sér skerðingu á andlegri og líkamlegri færni vegna rýrnunar á heilavef heldur sé hún flókið samspil fleiri þátta, meðal annars persónuleika viðkomandi, lífssögu, líkamlegs heilbrigðis og ekki síst áhrifa frá umhverfinu. Hann nálgast efnið á þverfaglegan hátt; með kenningum sínum sýnir hann fram á hvernig taugafræðilegir, félagssálfræðilegir og menningarlegir þættir skipta máli fyrir skilning okkar á heilabilun og hvernig þessir þættir hafa áhrif á umönnun fólks sem fær heilabilunarsjúkdóm.

Það sem er einstakt við hugmyndafræði og vinnu Kitwoods er að hjá honum er einstaklingurinn með sjúkdóminn miðpunktur allrar umræðu og umönnunar. Hann leggur ríka áherslu á mikilvægi persónulegrar færni og faglega þekkingu þeirra sem gegna umönnunarhlutverkinu. Meginkenning hans er sú að skilningur, nærgætni og umhyggja skipti sköpum fyrir aðlögun sjúklingsins að breyttum aðstæðum og hafi þar með úrslitaáhrif á lífsgæði hans og jafnvel framþróun sjúkdómsins.

Bókin er ætluð öllum sem vinna við umönnun fólks með heilabilun og nemendum í heilbrigðisvísindum, enda er jafnframt fjallað ýtarlega um hlutverk og þarfir starfsfólks, en nýtist einnig aðstandendum og öðrum sem vilja dýpka skilning sinn á heilabilun og þeim vanda sem þar er við að etja.

Tom Kitwood var breskur sálfræðingur og prófessor við Bradfordháskóla í Englandi. Hann lést um aldur fram í nóvember 1998 en hafði þá í fjölda ára beitt sér fyrir umbótum á sviði umönnunar fólks með heilabilun og sett fram nýjar kenningar á grundvelli eigin rannsókna og annarra.

Svava Aradóttir er hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur sérhæft sig í umönnun fólks sem greinst hefur með heilabilunarsjúkdóm. Hún rekur ráðgjafafyrirtækið Nordic Lights og hefur haldið fyrirlestra um heilabilun víða, m.a. á Íslandi, í Noregi og í Danmörku.

 

[Domar]

„Einstaklega athyglisverð og merkileg bók.“
Viðar Eggertsson / RÚV

„Stórkostlegt rit.“
Sigurður G. Tómasson / Útvarp Saga

„Þetta er bók sem breytir.“
Jón Snædal öldrunarlæknir

[/Domar]

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning