Um bókina
Í bókinni birtast tuttugu og níu heimspekileg olíumálverk. Hverju verki fylgir nokkur texti á önverðri síðu. Verkin eru öll úr vestrænni heimspekisögu og skiptast í þrjá bálka. Mikið af heimspekilegum efniviði verkanna er sóttur til hinna fornu Grikkja, en einnig eru myndir úr heimspeki nýaldar.
Í bókinni birtast tuttugu og níu heimspekileg olíumálverk. Hverju verki fylgir nokkur texti á önverðri síðu. Verkin eru öll úr vestrænni heimspekisögu og skiptast í þrjá bálka: I. Sálarhugyndir ýmissa heimspekinga. Hér getur m.a. að líta fimm sálargerðir sem Platon lýsir í höfuðverki sínu Ríkinu. II. Veraldarsýn og hugtakaheimur frumherjanna í grískri heimspeki. III. Heimspekihugmyndir af ýmsu tagi. Hverri fylgir skýringartext á öndverðri síðu. Inngangur er að bókinni þar sem höfundur skýrir tilkomu verkanna og hugsunina á bakvið þau. Mikið af heimspekilegum efniviði verkanna er sóttur til hinna fornu Grikkja, en einnig eru myndir úr heimspeki nýaldar.
Höfundurinn, Eyjólfur Kjalar Emilsson, hefur lengst af verið prófessor í heimspeki við Oslóarháskóla og er alþjóðlega þekktur fræðimaður á sviði fornaldarheimspeki. Hann hefur jafnframt verið áhugamálari frá barnsaldri og hefur haldið nokkrar málverkasýningar, síðast í Hjarta Reykjavíkur 2021 og 2022. Með því að mála heimspeki freistar Eyjólfur að sameina tvö helstu áhugssvið sín. Kunnugir telja að heimspekimálverk af þessu tagi séu alger nýjung sem heimurinn hafi aldrei fyrr augum litið.













