Maðurinn sem Ísland elskaði
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 497 | 5.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 497 | 5.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
Paul Gaimard átti tvær heimsreisur að baki þegar hann kom eins og stormsveipur til Íslands sumrin 1835 og 1836. Hér stýrði hann mestu vísindaúttekt sem gerð hafði verið á þessari eyju sem fáir þekktu og lét teikna myndir sem gefa einstaka innsýn í lífið á Íslandi á þessum tíma. Gaimard vann hug og hjörtu landsmanna með því að læra íslensku og sýna þeim einlægan áhuga. En þrátt fyrir að hafa verið þekktur maður á sinni tíð eru bæði hann og leiðangrar hans að mestu gleymdir.
Í Maðurinn sem Ísland elskaði er saga þessara stórmerku leiðangra rakin og jafnframt sagt frá ævintýralegu lífshlaupi á tímum mælinga heimsins. Byggt er á ýmsum gögnum sem aldrei hafa komið fyrir almenningssjónir áður, þar á meðal dagbókum Gaimards, og dregin upp ljóslifandi mynd af fólki, stöðum og heimssögunni á fyrri hluta nítjándu aldar. Um eitt hundrað myndir prýða bókina.
Árni Snævarr lærði sögu í Frakklandi og á Íslandi, stundaði blaðamennsku um árabil og hefur undanfarin ár unnið hjá alþjóðastofnunum og er nú búsettur í Brussel. Við vinnslu bókarinnar kannaði hann frönsk skjalasöfn og heimsótti helstu staði sem við sögu koma á Íslandi og í Frakklandi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Höfundur les.
Hér má hlusta á brot úr inngangi hljóðbókarinnar:
4 umsagnir um Maðurinn sem Ísland elskaði
embla –
„Mikil frásagnargleði … Árni hefur reist honum [Paul Gaimard] góðan minnisvarða og það er vel.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Arnar –
„Afskaplega fjörlega skrifuð bók og höfundur hefur djúpa ástríðu fyrir efni sínu … þetta er einkar skemmtileg bók.“
Sölvi Sveinsson / Morgunblaðið
Elín Pálsdóttir –
„Skemmtileg, fróðleg, læsileg og skýr og gefur alveg óaðfinnanlega mynd af efninu, tímanum, mannfólkinu.“
Illugi Jökulsson
Elín Pálsdóttir –
„Einstaklega læsileg og skemmtileg sagnfræði.“
Guðmundur Andri Thorsson