Ljúflingar: Prjónað fyrir útivistina

Almenn rit

Ljúflingar: Prjónað fyrir útivistina

eftir Hanne Andreassen Hjelmås og Torunn Steinsland

2021 · 165 bls.

Veldu snið

4.890 kr.

Til á lager

Um bókina

Í Ljúflingar: Prjónað fyrir útivistina eru yfir 40 prjónauppskriftir að fallegum og sígildum flíkum á alla fjölskylduna. Hér eru uppskriftir að peysum, húfum, vettlingum, sokkum og öðru sem gott er að klæðast úti við, hvort sem leiðin liggur upp til fjalla, inn í skóg, á skíði, í siglingu eða niður á strönd og flíkurnar henta fyrir allar árstíðir.

Garnið í uppskriftunum er ýmist fínt eða gróft, og hér má velja milli einfaldra verkefna fyrir byrjendur og flóknari fyrir lengra komna.

Hanne Andreassen Hjelmås og Torunn Steinsland standa að KlompeLOMPE sem er bæði öflug netsíða og netverslun og þær hafa gefið út fjölmargar prjónabækur sem notið hafa mikilla vinsælda í Noregi og fleiri löndum. Á íslensku hefur áður komið út bók þeirra Ljúflingar: Prjónað á smáa og stóra.

 

Karfan þín

Valmynd