Líkami okkar, þeirra vígvöllur

Almenn rit

Líkami okkar, þeirra vígvöllur

eftir Christina Lamb

2020 · 474 bls.

Veldu snið

3.890 kr.

Til á lager

Um bókina

Í þessari mögnuðu bók lætur höfundurinn, breski blaðamaðurinn Christina Lamb, raddir kvenna heyrast og afhjúpar hvernig herir, hryðjuverkamenn og vígasveitir beita nauðgunum sem stríðsvopni í nútímaátökum til þess að niðurlægja, hræða og stunda kynþáttahreinsanir.

Þessi sláandi bók, sem vakið hefur heimsathygli, er ákall til okkar um að hlusta og hafast að gegn vanræktasta glæpi heimsins.

„Bókstaflega mest sláandi og óhugnanlegasta bók sem ég hef nokkru sinni lesið.“
– Antony Beevor, sagnfræðingur og rithöfundur

„Þessi bók er vakning til vitundar um gríðarlegt umfang og skelfingu nauðgana í stríði — vanræktasta stríðsglæp mannkynsins. Sögur þessara kvenna koma ykkur til að gráta og fyllast reiði yfir tómlæti heimsins.“
– Amal Clooney, mannréttindalögfræðingur

Karfan þín

Valmynd