Lénið Ísland: Valdsmenn á Bessastöðum og skjalasafn þeirra á 16. og 17. öld
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 666 | 7.990 kr. |
Lénið Ísland: Valdsmenn á Bessastöðum og skjalasafn þeirra á 16. og 17. öld
7.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 666 | 7.990 kr. |
Um bókina
Á 16. og 17. öld var Ísland lén í Danmörku og var rekstur þess og stjórnsýsla sambærileg við önnur lén innan danska ríkisins. Á þessu tímabili voru stigin fyrstu stóru skrefin í mótun ríkisvalds á Íslandi með styrkingu konungsvalds, þar sem einn lénsmaður fór með völd í landinu fyrir hönd konungs. Hér birtist ný sýn á sögu 16. og 17. aldar á Íslandi, stöðu Íslands innan danska ríkisins og hvernig þróun stjórnsýslunnar í Kaupmannahöfn birtist hér á landi.
Hverjir voru þessir lénsmenn konungs á Íslandi og hvernig mótaðist stjórnsýsla konungs? Hvaða skjöl urðu til á tímabilinu 1541–1683 við stjórn og rekstur lénsins Íslands og hvaða sögu segja þau? Frumheimildir um stjórnsýslu þessa tímabils hafa um margar aldir verið sundraðar og ekki hefur áður verið tekið á þeim út frá uppruna skjalanna og stjórnsýslulegu samhengi. Heimildirnar eru varðveittar á söfnum bæði á Íslandi og í Danmörku.
Lénið Ísland er grundvallarrit um þetta áður lítt rannsakaða tímabil í sögu Íslands.