Um bókina
Efra svæði Laxár er gríðarlega umfangsmikið og fjölbreytt og það tók tíman sinn að fá yfirlit yfir þann hluta árinnar. Leiðsögnin byggir á áratuga reynslu okkar af veiðum á svæðinu en Kolbeini Grímsson kynnti okkur fyrir ánni. Kolbeinn lá ekki á sinni þekkingu og því ber okkur að miðla því sem hann kenndi okkur og það sem við höfum lært síðan.
Svæðið skiftist í átta hluta. Arnarvatn, Brettingsstaði, Geirastaði, Geldingey, Hamar, Helluvað, Hofstaðaeyju og Hofstaði. Umfangi hvers veiðisvæðis er lýst og fjöldi loftmynda fylgir hverju svæði. Örnefni og veiðistaðir eru merktir inn á myndirnar. Veiðistaðir eru tilgreindir og hvernig aðstæður eru og vaðleiðir.













