Landnám – ævisaga Gunnars Gunnarssonar

Ævisögur

Landnám – ævisaga Gunnars Gunnarssonar

Jón Yngvi Jóhannsson

Veldu snið

4.140 kr.

Til á lager

  • „Landnám er einstaklega góð greining á verkum Gunnars Gunnarssonar, sem og lífsskoðunum hans og persónuleika. Lesandi skilur ekki einungis höfundarverk skáldsins betur eftir að hafa lesið þessa bók, heldur er hann einnig nokkurs vísari um mannlegt eðli … Stórmerkileg ævisaga, samin af heiðarleika og djúpri sannleiksþrá.“

    Fréttablaðið · Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir

Um bókina

Tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2011
Tilnefnd til Hagþenkisverðlaunanna 2011

Gunnar Gunnarsson var einn mest lesni íslenski rithöfundurinn á 20. öld en líf hans var markað skörpum mótsögnum. Hann var friðarsinni en studdi þó forystumenn hugmyndafræði sem kallaði yfir heiminn blóðugt stríð og skipulagða útrýmingu milljóna manna. Hann var mikill fjölskyldumaður – samt átti hann í eldheitu ástarsambandi við aðra konu og eignaðist með henni barn. Hann seldi fleiri bækur í Evrópu en nokkur annar íslenskur höfundur á sínum tíma en yfirgaf meginlandið til að gerast bóndi í íslenskri sveit. Viðfangsefni hans voru alla tíð tengd íslensku þjóðerni og íslenskri menningu – samt verða hvorki ævi hans né verk skilin nema sífellt sé haft í huga að hann skrifaði öll helstu verk sín á dönsku.

Jón Yngvi Jóhannsson byggir ævisögu Gunnars á umfangsmikilli könnun heimilda, fyrst og fremst íslenskra og danskra en einnig um samskipti Gunnars við þýskan bókmenntaheim og þýsk yfirvöld. Hann fjallar hispurslaust um einkalíf Gunnars og tekur skáldverk hans til rækilegrar umfjöllunar og endurmats.

Karfan þín

Valmynd