Krapaflóðin á Patreksfirði 1983
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 188 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 188 | 2.990 kr. |
Um bókina
Laugardaginn 22. janúar 1983 féllu tvö krapaflóð á byggðina á Patreksfirði með skömmu millibili, með þeim afleiðingum að fjórir einstaklingar létust. Nokkrum mínútum eftir að fyrra flóðið féll voru allir sem vettlingi gátu valdið komnir á flóðasvæðið þar sem mikil eyðilegging blasti við.
Í fyrstu var óttast að nærri 30 manns væri saknað og stór hluti þeirra væru börn sem voru við leik í farvegi flóðsins skömmu áður en það féll. Tæpum tveimur klukkustundum síðar féll annað flóð, sem einnig olli miklu tjóni. Í kjölfarið óttuðust fjölmargir að fleiri flóð myndu falla með þeim afleiðingum að stór hluti bæjarins myndi lenda undir þeim. Til að hafa vaðið fyrir neðan sig var nánast allur bærinn rýmdur og gistu í kringum 500 manns í tveimur fjöldahjálparstöðvum um nóttina og í heimahúsum sem talin voru standa á öruggum stað.
Bókin er að stórum hluta byggð á viðtölum við 70 manns sem annað hvort voru staddir á heimilum sínum sem urðu fyrir flóðunum eða tóku þátt í björgunarstörfum með einhverjum hætti. Fjöldi mynda prýðir bókina.