Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Kjúklingaréttir Nönnu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 134 | 3.310 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 134 | 3.310 kr. |
Um bókina
Kjúkling má nýta á ótrúlega margvíslegan hátt, jafnt í ódýra hversdagsrétti sem fínasta veislumat. Hér gefur Nanna uppskriftir að fimmtíu frábærum kjúklingaréttum þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og sýnir fjölbreyttar en einfaldar matreiðsluaðferðir þar sem kjúklingur verður að gómsætum kræsingum af öllu tagi.
Nanna Rögnvaldardóttir er löngu orðin landsþekkt fyrir skrif sín um mat og matargerð og einfaldar en gómsætar uppskriftir að alls kyns réttum. Hún hefur sent frá sér á annan tug vinsælla matreiðslubóka, þar á meðal Smárétti Nönnu, Jólamat Nönnu og Múffur í hvert mál.
Kjúklingaréttir Nönnu var tilnefnd til alþjóðlegu Gourmand-verðlaunanna í flokknum „Best Single Subject Cookbook“.
1 umsögn um Kjúklingaréttir Nönnu
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Að öllu samanlögðu er nýjasta bók Nönnu Rögnvaldardóttur heillandi og aðgengilega matreiðslubók, full af fallegum myndum og girnilegum uppskriftum en tekur sjálfa sig ekki of hátíðlega – ekki frekar en höfundurinn.“
Helga Birgisdóttir / Spássían