Jarðvegur – Myndun, vist og nýting
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 230 | 5.890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 230 | 5.890 kr. |
Um bókina
Jarðvegur er hvarvetna ein af undirstöðum búsetu en oft hefur jarðvegur landa eða landsvæða mikla sérstöðu og það á til dæmis við um Ísland. Bókin er í senn almennt fræðirit um íslenskan jarðveg þar sem leitast er við að vitna í nær allar heimildir þar sem fjallað hefur verið um íslenskan jarðveg á seinustu áratugum og um leið grundvallarrit til kennslu í jarðvegsfræði á háskólastigi.
Í bókinni er í meginatriðum fjallað um eftirfarandi efni:
- Jarðvegsmyndun og tengsl við umhverfið
- Eðliseiginleika jarðvegs
- Næringarefni
- Ræktun og landnýtingu
- Álag á jarðveg
- Flokkun jarðvegs, bæði innlenda og alþjóðlega
- Mat á jarðvegi og landi
Bókin er handhægt og aðgengilegt uppsláttarrit fyrir þá sem koma að ákvörðunartöku um skipulag og nýtingu lands og fyrir alla sem hafa áhuga á náttúru landsins.
Þorsteinn Guðmundsson er doktor í jarðvegsfræði frá háskólanum í Aberdeen og var kennari og síðan prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands. Áður starfaði hann við háskólann í Freiburg og tækniháskólann í Berlín í Þýskalandi.