Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Iceland Defense Force
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2015 | 4.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2015 | 4.190 kr. |
Um bókina
Árið 2006 hurfu Bandaríkjamenn á brott með her sinn af Miðnesi eftir 55 ára setu. Þegar mest lét voru íbúarnir hátt í sex þúsund, fleiri en í flestum bæjum á Íslandi. Á afgirtu varnarliðssvæðinu var sjálfbært bandarískt samfélag með verslanir, sjúkrahús, sundlaug, skemmtistaði, flugvöll, skóla og fleira, auk hernaðarmannvirkja og íbúðarhúsa, og þar var allt með öðru sniði en Íslendingar áttu að venjast.
Bragi Þór Jósefsson ljósmyndaði þennan mannlausa bæ eins og Bandaríkjamenn skildu við hann, rétt áður en Íslendingar tóku að laga hann að sínum þörfum. Byggingarnar hafa lokið upphaflegum tilgangi sínum og bíða þess sem verða vill, á valdi náttúrunnar og nýrra herra.