Um bókina
Enn bregður höfundur á leik í nýrri spjallbók með örsögum, ljóðum og minningaleiftrum frá langri og viðburðaríkri ævi. Hann rabbar við lesendur í þeim stíl sem kallaður hefur verið causeries á útlensku jafnframt því að mæla fram gömul og ný ljóð.
Við horfðum í landslagið
óendanlegt
stein og þúfu og akur
Við horfðum í sólarlagið
sem lofaði nýjum degi
mörgum
Svo kom loftslagið
óvænt













