Hvítabirnir á Íslandi

Almenn rit

Hvítabirnir á Íslandi

eftir Rósa Rut Þórisdóttir

2018 · 272 bls.

Veldu snið

2.990 kr.

Til á lager

Um bókina

Stórmerkileg bók um komu hvítabjarna til Íslands, allt frá landnámsöld til okkar daga, með  viðkomu í sögum og sögnum um þessar ógnvekjandi skepnur. Og þetta voru engir aufúsugestir:

„Fréttin um hvítabjörninn barst í einu vetfangi um alla eyjuna og komu allir byssufærir menn saman von bráðar.  Þrjú bæli sáust í hlíðinni og var álitið í fyrstu að dýrin væru fleiri en eitt.  Lagt var af stað upp hlíðina móti vindáttinni.  Menn voru vel undir viðureignina búnir og meira að segja var hákarlaskálm ein mikil með í förinni.  Atlagan hófst. Menn skipuðu sér í hálfhring í kring um híðið og komu sér fyrir í skotstöðu í um það bil 20 feta fjarlægð.  Björninn hafði lítið bært á sér til þessa en nú tók hann að óróast. Hann rak vígalegan hausinn út um munna grenis síns og þegar hann sá mennina lét ófriðlega í honum …“

Karfan þín

Valmynd