Hugræn endurforritun – 4. útgáfa

Almenn rit

Hugræn endurforritun – 4. útgáfa

eftir Ingibergur Þorkelsson

2026 · 280 bls.

Veldu snið

3.290 kr.

Til á lager

Um bókina

HUGURINN GEYMIR LYKILINN að lausn vandamála þinna

Þegar við teljum okkur taka meðvitaðar ákvarðanir vinnur dulvitundin í bakgrunni. Sjálfið er margþætt og hver þáttur er sérstakur persónuleiki sem vinnur fyrir þig af bestu samvisku – en veit oft ekki að þú þroskast og breytist.

Þú fylgir reglum sem þú þekkir ekki en hefur farið eftir síðan þú varst barn. Í dulvitundinni býr líka þinn eigin læknir sem getur breytt reglum og þáttum í huganum.

Hann getur líka eytt kvíða, þunglyndi, fíkn, fælni, vefjagigt og flestu öðru sem hrjáir fólk. Fyrir fullt og allt.

Þessi bók fjallar um uppbyggingu hugans og hvernig er hægt að breyta henni í dáleiðslumeðferð. Bókin er kennslubók á framhaldsnámskeiði Dáleiðsluskóla Íslands en allir geta lært af henni hvers vegna þeir eru eins og þeir eru.

Karfan þín

Valmynd